• 7.1.2023 - 8.1.2023, Garðabær

Jólatré hirt í Garðabæ helgina 7.-8. janúar

  • Jólatré hirt í Garðabæ

Jólatré verða hirt í Garðabæ helgina 7.-8. janúar nk. Íbúar sem ætla að nýta sér þjónustuna eru beðnir um að ganga frá trénum út fyrir lóðamörk þannig að þau geti ekki fokið.

Félagar úr Hjálparsveit skáta í Garðabæ sjá um að hirða jólatrén eins og fyrri ár.

Einnig geta íbúar losað sig við jólatré á endurvinnslustöðum Sorpu bs.