• 20.6.2019, 19:30 - 22:00, Meðfram strandstígnum í Sjálandshverfi

Jónsmessugleði Grósku

  • Jónsmessugleði Grósku 2019

Jónsmessugleði Grósku verður haldin fimmtudaginn 20. júní kl. 19:30-22:00.

Jónsmessugleði Grósku verður haldin fimmtudaginn 20. júní kl. 19:30-22:00.

Gefum - gleðjum - njótum eru einkunnarorð hátíðarinnar. Jónsmessugleðin er nú haldin í ellefta sinn. 

Viðburður á fésbókarsíðu Grósku. 

Gróska, félag myndlistarmanna í Garðabæ, ætlar að halda hina árlegu Jónsmessugleði á göngustígnum við strandlengjuna í Sjálandi fimmtudagskvöldið 20. júní nk. frá kl. 19:30-22. Fjölmargir myndlistarmenn taka þátt í Jónsmessugleði og setja upp myndlistarsýningu sem stendur eingöngu þetta eina kvöld. Jónsmessugleði var haldin fyrst árið 2009 og er nú haldin í ellefta sinn.

Eins og endranær verða fjölbreytileg listaverk til sýnis við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Auk félaga úr Grósku, myndlistarfélagi Garðabæjar, koma gestalistamenn frá Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjavík og Blönduósi. Sýnd verða málverk á striga, innsetningar og önnur verk og hægt verður að fylgja fjölbreytilegum þráðum því þemað er að þessu sinni „Þræðir“.

Jónsmessugleði Grósku teygir sig inn í Jónshús til málverkasýningar eldri borgara og til ungu listamannanna í Skapandi sumarstarfi sem sýna vestast við Strandstíginn og verða líka með önnur listatriði. Ungir sem aldnir láta ljós sitt skína enda er Jónsmessugleði fyrir fólk á öllum aldri. Auk sjálfrar sýningarinnar verða margir skemmtilegir listviðburðir á dagskrá, svo sem söngur, tónlist, leiklist og fleira og Gróska býður upp á veitingar. Að venju lýkur Jónsmessugleði Grósku svo með óvæntum gjörningi kl. 22.

Bæjarstarfsmenn og sumarvinnuhópar umhverfisátaks aðstoða með uppsetningu, frágang og ýmsa skipulagningu.

Allir velkomnir.