• 12.4.2025, 14:00, Garðatorg - miðbær

Klapp klapp stapp stapp á Barnamenningarhátíð í Garðabæ

Fjölskyldusmiðja sem er sniðin að börnum frá 4 ára aldri með virkri þátttöku fullorðinna. 

Hvaða tónlist er hægt að finna í öllum menningarsamfélögum? Klappleiki barna!Klapp klapp stapp stapp er fjölskyldusmiðja sem haldin hefur verið reglulega við góðan orðstír. Í smiðjunni verður farið í einfalda og skemmtilega klappleiki og söngva. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf. Smiðjan fer fram á göngugötunni Garðatorgi, við hliðina á apótekinu.

Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng.

Smiðjan er sniðin að börnum frá 4 ára aldri með virkri þátttöku fullorðinna. Yngri systkini þó velkomin með í fylgd fullorðinna.Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!