• 4.9.2019 - 5.9.2019, 13:00 - 14:30, Sveinatunga

Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga

  • Sveinatunga - fjölnota fundarsalur bæjarins á Garðatorgi

Jafnréttisstofa í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Garðabæ boðar til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga dagana 4.-5. september 2019.

Jafnréttisstofa í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga og Garðabæ boðar til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga dagana 4.-5. september 2019. Fundurinn verður haldinn í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar Garðabæjar, Garðatorgi 7.

Á vef Jafnréttistofu má sjá dagskrá fundarins og þar er líka skráningarform fyrir þátttakendur.
Þátttökugjald er 10.000 kr.  Skráning er til föstudagsins 30. ágúst nk.

Skyldur sveitarfélaga þegar kemur að jafnréttismálum eru miklar og snerta sveitarfélögin sem stjórnvald, vinnuveitendur og veitendur þjónustu. Landsfundurinn er því kjörinn vettvangur fyrir m.a. sveitarstjórnarfólk, fulltrúa í nefndum sem fara með jafnréttismál og starfsfólk sem hefur með málaflokkinn að gera til að hittast, fræðast og deila reynslu.