Leshringur Bókasafns Garðabæjar
Leshringur Bókasafns Garðabæjar, hinn klassíski, hittist annan hvern þriðjudag frá lok janúar til byrjun apríl kl. 10:30-12:00
Leshringur Bókasafns Garðabæjar, hinn klassíski, hittist annan hvern þriðjudag 27. janúar - 7. apríl, kl.10:30 - 12 á safninu á Garðatorgi 7.
Þemað þessa önn er Nýlegt og norrænt, notalegt og napurt og ræddar verða bækur eftir sex höfunda í hverjum tíma.
Meðlimir kynna sér saman fræðsluefni um bókmenntirnar og ræða um og segja frá þeim bókum sem þeir hafa lesið.
Spjallað er um daginn og veginn, þjóðfélagsstrauma og bókmenntastefnur, á léttum nótum yfir kaffibolla.
Nýir meðlimir velkomnir.
Viðburður á facebook síðu bókasafnsins.
Yfirlit yfir viðburði á næstunni hjá Bókasafni Garðabæjar.
