• 8.2.2025, 11:30, Bókasafn Garðabæjar

Lesið fyrir hund

Hér fá börn tækifæri til að lesa fyrir sérþjálfaða hunda. Skráning nauðsynleg.

Börn geta tekið heimalesturinn sinn eða spennandi bók sem þau eru að lesa og lesið fyrir sérþjálfa hunda frá Vigdísi - vinir gæludýra á Íslandi.

Það er takmarkað pláss og þess vegna er nauðsynlegt er að skrá sig og bóka pláss í síma 591 4550 eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is. Laugardaginn 8. febrúar, klukkan 11:30, 11:50 eða 12:10.

Það þarf að gefa upp nafn og aldur barns og nafn, kennitölu, símanúmer og netfang þess sem mætir með barninu á safnið.