Lesið fyrir hund
Skráning er nauðsynleg.
Hvað er skemmtilegra en að lesa fyrir hund? Laugardaginn 10.maí klukkan 11:30-12:30.
Börn geta tekið heimalesturinn sinn eða spennandi bók sem þau eru að lesa og lesið fyrir sérþjálfa hunda frá Vigdísi - vinir gæludýra á Íslandi.
Nauðsynlegt er að skrá sig og bóka pláss í síma 591 4550 eða með tölvupósti bokasafn@gardabaer.is
Það þarf að gefa upp nafn og aldur barns og nafn, kennitölu, símanúmer og netfang þess sem mætir með barninu á safnið. Takmarkað pláss.
Verið hjartanlega velkomin!