• 12.9.2020, 11:30, Bókasafn Garðabæjar

Lesið fyrir hund á bókasafninu

  • Lesið fyrir hund á bókasafninu

Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir.

Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir laugardaginn 12. september nk. kl. 11:30. Hægt er að koma með eigin bók eða velja sér lesefni á safninu. Barnið verður að geta lesið sjálft. Öll grunnskólabörn velkomin en takmarkaður fjöldi kemst að. 

Skráning fyrirfram

Nauðsynlegt er að skrá sig og boða forföll með fyrirvara. Skráning er í netfangið bokasafn@gardabaer.is , í afgreiðslu safnsins á Garðatorgi eða í síma 591 4550.