• 11.6.2025, 14:00, Bókasafn Garðabæjar

Lesum saman: Leshringur með barninu

Leshringurinn Lesum saman er ætlaður fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára þar sem þau taka með sér eldri lesfélaga. 

Leshringurinn Lesum saman er ætlaður fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára þar sem þau taka með sér eldri lesfélaga (foreldri, ömmu, afa, frænku, frænda, eldri systkini o.s.frv.). Leshringnum sem verður stýrt af starfsfólki bókasafnsins og hefur þann skemmtilega tilgang að búa til umhverfi þar sem þátttakendur eiga saman gæðastund þar þeir fá aðstoð við að velja sér lesefni og rætt verður saman um bækur á léttum nótum.

Leshringurinn verður á hverjum miðvikudegi í sumar frá klukkan 14-15 frá 11. júní til og með 20. ágúst.