Lettneskt vettlingaprjón með Dagnýju
Garðaprjón: Lettneskt vettlingaprjón með Dagnýju Hermannsdóttur.
Vertu velkomin í bráðskemmtilegt prjóna "popp-up" með Dagnýju Hermannsdóttur textílkennara.
Dagný segir okkur frá merkilegum vettlingahefðum Letta, fjörugum prjónaferðum í Lettlands og í enda kvölds verður skemmtilegt happdrætti.
Dagný er textilkennari að mennt og forfallin prjónakona. Hún hefur farið í fjölda ferða til Lettlands, til að byrja með til að fræðast sjálf en undanfarin ár hefur hún einnig verið fararstjóri í ýmiskonar prjóna- og handverksferðum á vegum ferðaskrifstofunnar Mundo. Ferðirnar eru í samstarfi við Þjóðbúningastöðina í Riga.
Í Lettlandi sköpuðust einstakar hefðir í vettlingaprjóni. Konur lögðu gríðarlegan metnað í að hanna og prjóna einstaka vettlinga, munstrin voru fjölbreytt og mismunandi hefðir sköpuðust milli héraða.
Í Lettlandi hafa varðveist ótrúlega fjölbreytt og mörg vettlingamunstur og enn í dag eru vettlingar mikils metnir þar í landi.
English
Welcome to a fun knitting "pop-up" with textile teacher Dagný Hermannsdóttir. Dagný tells us about the remarkable mitten traditions of Latvia, lively knitting trips in Latvia and at the end of the evening there will be a fun raffle.
Dagný is a textile teacher by education and a former knitter. She has made many trips to Latvia, to start with learning on her own, but in recent years she has also been a tour guide on various knitting and craft trips organized by the travel agency Mundo. The trips are in collaboration with the National Costume Center in Riga.
In Latvia, unique traditions were created in mitten knitting. Women took great pride in designing and knitting unique mittens, the patterns were diverse and different traditions were created between regions. In Latvia, an incredibly diverse and many mitten patterns have been preserved and mittens are still highly valued in that country today.
