• 7.4.2021, 20:00, Bein útsending á vefnum

Líðan unglinga í Garðabæ

  • Hjólakraftshópur

Nýjar upplýsingar um hagi og líðan barnanna okkar. Upplýstir og virkir foreldrar eru besta forvörnin!

  • Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu kynnir niðurstöður nýjustu könnunar á á högum og líðan grunnskólabarna í 8., 9., og 10. bekk.
    Könnunin var framkvæmd í febrúar 2021 meðal nemenda í 5.-10. bekk í öllum skólum landsins. Í könnuninni er spurt um hegðun og líðan barnanna, notkun samfélagsmiðla og tölvuleikja, heilsu og líðan, svefn og klámnotkun. Skoða má niðurstöður könnunarinnar á landsvísu á vefnum https://www.rannsoknir.is.
  • Fulltrúar frá Grunnstoð Garðabæjar (fulltrúar foreldrafélaga í grunnskólum Garðabæjar) segja í byrjun fundar frá grunnstoðinni og foreldrarölti sem er verið að setja af stað aftur í maí eftir nokkurra ára hlé.
Fundurinn var í beinu streymi miðvikudaginn 7. apríl - upptaka af fundinum verður aðgengileg hér á vefnum fram til mánudags 12. apríl nk.  ATH útsending byrjar á mínútu 08:00.

Bein útsending  - miðvikudagur 7. apríl kl. 20 - líðan unglinga í Garðabæ


Við hvetjum foreldra barna og ungmenna í Garðabæ til að þess að nýta þetta frábæra tækifæri til þess að fá upplýsingar um líðan barnanna okkar og hvað raunverulega er að gerast í umhverfinu okkar.

Fundurinn verður í beinu streymi hér á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu Garðabæjar og foreldrar allra árganga grunnskólabarna og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með fundinum.  Hægt er að senda inn spurningar á meðan á fundinum stendur í gegnum fésbókarsíðu Garðabæjar. 

Sjá viðburð á fésbókarsíðu Garðabæjar.