• 24.9.2020, 17:00 - 19:00, Bókasafn Garðabæjar

Listamaður mánaðarins í bókasafninu - Unnur Sæmundsdóttir

  • Unnur Sæmundsdóttir

Listamaður septembermánaðar á Bókasafni Garðabæjar er Unnur Sæmundsdóttir, í samstarfi við Grósku félags myndlistarmanna í Garðabæ.

Listamaður septembermánaðar á Bókasafni Garðabæjar er Unnur Sæmundsdóttir, í samstarfi við Grósku félags myndlistarmanna í Garðabæ.

Unnur verður á safninu á Garðatorgi laugardaginn 12. september klukkan 13-15 og fimmtudaginn 24. september klukkan 17-19 og spjallar við gesti og gangandi um sýninguna sína DULVITUND.

Unnur Sæmundsdóttir er Garðbæingur og grafískur hönnuður sem vinnur í leirlist og sjónlist. Unnur er kennari í myndmennt við Áslandsskóla í Hafnafirði og er með vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar.

Viðburður á fésbókarsíðu bókasafnsins.