• 24.7.2020, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar

Ljóðasmiðja á Bókasafni Garðabæjar

Föstudaginn 24. júlí milli klukkan 10 og 12 býður Bókasafn Garðabæjar upp á ljóðasmiðju þar sem kennd verða úrklippuljóð og myrkvunarljóð.

Föstudaginn 24. júlí milli klukkan 10 og 12 býður Bókasafn Garðabæjar upp á ljóðasmiðju!

Við lærum að gera úrklippuljóð og myrkvunarljóð.

Smiðjan hentar alveg frá 8 ára upp í 100 ára!  Allir hjartanlega velkomnir.

Eftir smiðjuna verður lestrarhestur vikunnar dreginn út í sumarlestrinum okkar.
Endilega kynnið ykkur sumarlesturinn hjá okkur í afgreiðslunni.