• 11.9.2019, 18:00 - 19:00, Íþróttamiðstöðin Ásgarður

Lýðheilsuganga frá Ásgarði

  • Hreystigarður og strandblakvellir

Miðvikudaginn 11. september kl. 18:00 leiðir Svandís Ríkharðsdóttir íþróttakennari hressingargöngu frá íþróttamiðstöðinni Ásgarði með viðkomu í nýja Bæjargarðinum

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september. Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land. Þetta er þriðja árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum.
Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga vítt og breitt um landið. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem eru uþb 60-90 mínútur að lengd. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Boðið verður upp á göngur í Garðabæ miðvikudagana 4., 11., 18. og 25. september.

Næstu göngur

  • Miðvikudaginn 11. september kl. 18:00 leiðir Svandís Ríkharðsdóttir íþróttakennari hressingargöngu frá íþróttamiðstöðinni Ásgarði með viðkomu í nýja Bæjargarðinum.

Viðburður á facebook.

  • Miðvikudaginn 18. september verður gengið á Álftanesi frá Kasthúsatjörn meðfram sjónum og umhverfis Bessastaðatjörn og sú ganga er einnig í samvinnu við SÍBS, Vesen og vergang og Wapp leiðsöguappið.
  • Miðvikudaginn 25. september verður gengið frá Garðakirkju um Garðahverfi með viðkomu m.a. í burstabænum Króki.


Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í göngunum þar sem boðið verður upp á fróðleik, auðvelda hreyfingu og umfram allt góðan félagsskap göngumanna.