• 16.6.2021, 16:00, Hönnunarsafn Íslands

Módelsmiður í vinnustofudvöl

  • Vinnustofudvöl módelsmiðs

Miðvikudaginn 16. júní kl. 16 hefst vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands. Sveinbjörn Gunnarsson hefur starfað sem grafískur hönnuður undanfarin 40 ár.

Miðvikudaginn 16. júní kl. 16 hefst vinnustofudvöl í Hönnunarsafni Íslands. Sveinbjörn Gunnarsson hefur starfað sem grafískur hönnuður undanfarin 40 ár. Hann hefur alla tíða haft áhuga og gaman af módelgerð og míneatúrum sem hann skapar af einstakri natni og hugmyndaauðgi. Efniviðinn finnur hann í sínu nánasta umhverfi og umbreytir á skapandi hátt. Mótífin eru einna helst úr borgarlandslaginu en einnig úr teiknimyndasögum Tinna. Sveinbjörn leggur mikið upp úr pakkningum verka sinna sem eru ávallt mikilvægur hluti af heildinni og fullkomna verkin.