Náttfatavinkonupartí á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Bókasafnið býður upp á fjörugt náttfatavinkonupartí.
Í tilefni af 8. mars - Alþjóðlegum baráttudegi kvenna, býður bókasafnið upp á fjörugt náttfatavinkonupartí.
Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta í náttfötum eða kósýgalla og ekki er verra að taka bangsakrútt með sér.
Boðið verður upp á: Popp, djús, tónlist, vinabandagerð og vinatré.