• 11.3.2019, 17:30 - 18:30, Hofsstaðaskóli

Opið hús í Hofsstaðaskóla - kynning vegna innritunar í skóla

  • Innritun í grunnskóla

Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2019 verður haldinn í skólanum mánudaginn 11. mars nk. kl. 17:30-18:30.

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.
Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.
Kynningar allra skóla - tímasetningar. 

HOFSSTAÐASKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2019 verður haldinn í skólanum mánudaginn 11. mars nk. kl. 17:30-18:30.
Nemendur og starfsmenn kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Regnbogann í fylgd nemenda og starfsmanna. Foreldrar annarra nýnema eru velkomnir á kynninguna.
Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
S. 590 8100
hofsstadaskoli.is