28. feb. 2019

Yfirlit kynninga grunnskóla í Garðabæ vegna innritunar haust 2019

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

  • Turn tekin úr kirkjuturni

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.
Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.
Kynningar verða sem hér segir:


ALÞJÓÐASKÓLINN (International School of Iceland)
Foreldrar og forráðamenn eru ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
S. 590 3106 eða 690 3100
internationalschool.is


ÁLFTANESSKÓLI
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2019 þriðjudaginn 12. mars kl. 17:30.
Kynningarfundur verður á sal skólans. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Álftamýri í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
S. 540 4700
alftanesskoli.is


BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR
Kynningarfundur fyrir börn sem hefja nám á 6 ára kjarna næsta haust og fjölskyldur þeirra, verður haldinn fimmtudaginn 14. mars kl. 17:00 á sal skólans. Kynning verður á skólastarfinu og skólahúsnæði verður til sýnis. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 555 7710
bskgbr.hjalli.is


FLATASKÓLI
Kynningarfundur verður fyrir börn sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og fjölskyldur þeirra í sal Flataskóla mánudaginn 4. mars kl. 17:30. Kynning verður á skólastarfinu og að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Krakkakot. Áhugasamir eru einnig velkomnir í heimsókn á skólatíma í vikunni 4. -8. mars í samráði við stjórnendur. Hafið þá vinsamlegast samband á undan á netföngin olofs@flataskoli.is eða helgam@flataskoli.is.
S. 513 3500
flataskoli.is


GARÐASKÓLI
Kynningarfundir fyrir nemendur og foreldra verða haldnir þriðjudaginn 5. mars kl. 17:30 og miðvikudaginn 6. mars kl. 20:00 á sal skólans. Sagt verður frá helstu þáttum í starfi skólans og gestum síðan boðið að skoða skólann í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 590 2500
gardaskoli.is


HOFSSTAÐASKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2019 verður haldinn í skólanum mánudaginn 11. mars nk. kl. 17:30-18:30.
Nemendur og starfsmenn kynna skólann og segja frá því sem þeim finnst markverðast í starfinu. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og tómstundaheimilið Regnbogann í fylgd nemenda og starfsmanna. Foreldrar annarra nýnema eru velkomnir á kynninguna.
Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
S. 590 8100
hofsstadaskoli.is


SJÁLANDSSKÓLI
Opið hús fyrir væntanlega nýnema og forráðamenn þeirra verður í skólanum fimmtudaginn 7. mars kl. 17:00-19:00. Gestum verður boðið að skoða skólann, félagsmiðstöðina Klakann (unglingastig) og tómstundaheimilið Sælukot (yngsta stig) í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
S. 590 3100
sjalandsskoli.is


URRIÐAHOLTSSKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1.-5. bekk verður haldinn í skólanum mánudaginn 4. mars nk. kl. 20:00. Kynning verður á skólastarfinu. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 591 9500
urridaholtsskoli.is