Fréttir: janúar 2023

Fyrirsagnalisti

Aftur til Hofsstaða

31. jan. 2023 : Sýningin Aftur til Hofsstaða opnuð á Safnanótt í Garðabæ

Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hefur um nokkurt skeið unnið að sýningunni Aftur til Hofsstaða sem verður opnuð á Safnanótt, 3. febrúar klukkan 17. 

Lesa meira
Tónlistarnæring í formi sönglaga eftir John Speight .

30. jan. 2023 : Tónlistarnæring - sönglög eftir John Speight

Miðvikudaginn 1. febrúar kl.12:15 fer fram Tónlistarnæring í formi sönglaga eftir John Speight í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. 

Lesa meira
Safnanótt í Garðabæ 2023.

28. jan. 2023 : Safnanótt í Garðabæ - fjör fyrir alla

Föstudagskvöldið 3. febrúar er komið að Safnanótt um allt höfuðborgarsvæðið. Menningarstofnanir í Garðabæ taka sannarlega þátt og allir aldurshópar ættu að finna eitthvað skemmtilegt að upplifa.

Lesa meira
Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar, Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Brynju og Snædís Björnsdóttir verkefnastjóri fjölskyldusviðs við

27. jan. 2023 : Vilja fjölga íbúðum Brynju í Garðabæ

„Við höfum átt afskaplega farsælt samstarf við Brynju leigufélag hér í Garðabæ en félagið á nú þegar 24 íbúðir hér í bænum. Við viljum fjölga þeim um 11 á næstu fimm árum og meta það í sameiningu hvernig best er að byggja upp eignasafn Brynju í Garðabæ þannig að það komi sem best til móts við þarfir öryrkja og fatlaðs fólks í sveitarfélaginu,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri.

Lesa meira

26. jan. 2023 : AUJA með sýningu á Garðatorgi

AUJA er með sýninguna WALK THROUGH á Garðatorgi 1, í Garðabæ. Sýning hennar opnaði um miðjan janúar og stendur til 31. mars.

Lesa meira
Þórir á leiksvæðinu við Lindaflöt.

24. jan. 2023 : Fjölmargir nýir leikvellir í Garðabæ

Í Garðabæ er alltaf stutt í næsta leikvöll en yfir 40 leiksvæði eru í Garðabæ. Mikil áhersla hefur verið lögð á barnvænt umhverfi inni í hverfunum og spila leikvellir þar stórt hlutverk. Undanfarin ár hafa fjölmargir leikvellir verið endurbættir í Garðabæ og aðrir nýir bæst við. Um er að ræða 19 leiksvæði sem eru ný eða hafa verið gerð upp á síðustu 2-4 árum.

Lesa meira
Innritun í grunnskóla

23. jan. 2023 : Frekari lokanir í Flataskóla og Hofsstaðaskóla

Verkfræðistofan Mannvit hefur unnið að heildarúttektum á skólahúsnæði Hofsstaðaskóla og Flataskóla vegna rakaskemmda. Fyrstu niðurstöður sýnatöku bárust 23. janúar og hefur Garðabær gripið til þess ráðs að loka rýmum i báðum skólum í kjölfarið. 

Lesa meira
Flataskóli

19. jan. 2023 : Staða sýnatöku og framkvæmda vegna rakaskemmda í skólum í Garðabæ

„Við höfum sett okkur upp skýrt verkferli, fengið Mannvit með okkur til sýnatöku og eftirlits og í fjárhagsáætlun bæjarins er gert ráð fyrir fjármagni til að sinna viðhaldi við skólana. Við leggjum áherslu á að vera í góðu samtali við foreldra og starfsfólk um þessi mál, en einnig nemendur skólanna. Við bíðum nú eftir niðurstöðum úr sýnatökum og getum þá sett fram nánari aðgerðaráætlun varðandi endurbætur,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

 

Lesa meira
Varhugavert ástand samhliða asahláku

19. jan. 2023 : Varhugavert ástand getur skapast samhliða asahláku á morgun

Á morgun föstudag er gert ráð fyrir asahláku í kjölfar hlýnandi veðurs eins og komið hefur fram í fréttum frá Veðurstofu Íslands. Eftir langan frostakafla stefnir í að það verðir allt að 10 stiga hiti á láglendi með rigningu.

Lesa meira

17. jan. 2023 : Skemmtilegir viðburðir á Hönnunarsafni Íslands

Föstudaginn 20. janúar klukkan 18 verður sýningin Fallegustu bækur í heimi opnuð á Pallinum og á sama tíma verður innflutningsboð hjá keramikhönnuðinum Ödu Stańczak sem verður í vinnustofudvöl í Hönnunarsafninu fram á vorið.

Lesa meira
Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar.

17. jan. 2023 : Samningur við Sjómannadagsráð um rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis

Í desember sl. endurnýjuðu Garðabær og Sjómannadagsráð samstarfssamning frá árinu 2017 um rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar.

Lesa meira
Almar Guðmundsson bæjarstjóri og fullrúar Hjálparsveit Skáta í Garðabæ við undirritun samningsins.

12. jan. 2023 : Samningur við Hjálparsveit skáta í Garðabæ

Á dögunum skrifuðu þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Íris Dögg Sigurðardóttir formaður Hjálparsveit skáta í Garðabæ undir þjónustusamning um stuðning við starfsemi sveitarinnar.

Lesa meira
Síða 1 af 2