Fréttir: ágúst 2018
Fyrirsagnalisti
![Sendinefnd frá Yunnan héraði í Kína heimsótti Garðabæ](/media/fretta-myndir/small/sendinefnd_yunnanherad_kina_290818-5-.jpg)
Heimsókn frá Yunnan héraði í Kína
Sendinefnd frá Yunnan héraði í Kína er stödd hér á landi og kom í heimsókn í ráðhús Garðabæjar í vikunni. Í ráðhúsinu tóku Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs Garðabæjar og Hulda Hauksdóttir upplýsingastjóri á móti fulltrúum nefndarinnar og fræddu gesti um starfsemi Garðabæjar.
Lesa meira![Styrkúthlutun](/media/fretta-myndir/small/styrkuthlutun-til-nema-i-leikskolakennarafraedum.png)
Undirritun styrkja til náms í leikskólakennarafræðum
Fyrsta styrkúthlutun til nema í leikskólakennarafræðum fór fram á bæjarskrifstofum Garðabæjar þann 30. ágúst 2018 síðastliðinn. Alls hlutu þrír nemar styrki en það eru þær Ásta Björk Árnadóttir, Ragnheiður Sívertsen og Anna Björnsdóttir.
Lesa meira![Telma Halldórsdóttir](/media/starfsmenn/small/telma_halldorsdottir.jpg)
Nýr persónuverndarfulltrúi Garðabæjar
Telma Halldórsdóttir lögmaður hefur verið ráðin persónuverndarfulltrúi Garðabæjar. Persónuverndarfulltrúi Garðabæjar mun vinna að því að fylgja eftir nýrri persónuverndarstefnu Garðabæjar sem var samþykkt í sumar.
Lesa meira![Lýðheilsuganga 2017](/media/fretta-myndir/small/lydheilsuganga130917-2-.jpg)
Lýðheilsugöngur í september
Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september. Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land. Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum.
Lesa meira![Turn tekin úr kirkjuturni](/media/byggingar-i-gardabae/small/turn-tekin-ur-kirkjuturni-copy-1-.jpg)
Tilkynning vegna rannsóknar lögreglu
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur lögreglan til rannsóknar tilvik um að veist hafi verið að stúlkum í Garðabæ undanfarna daga. Málið er litið alvarlegum augum og vinnur lögreglan að rannsókn þessara tilkynninga
Lesa meira![Turn tekin úr kirkjuturni](/media/byggingar-i-gardabae/small/turn-tekin-ur-kirkjuturni-copy-1-.jpg)
Truflanir á vatnsþrýstingi og tímabundið rafmagnsleysi næstu daga
Vegna vinnu við stofnæð verður lítill þrýstingur á vatni eftir kl. 22 þriðjudagskvöld 28. ágúst í hverfum austan Hafnarfjarðarvegar. Á miðvikudag og fimmtudag verður rafmagnslaust í nokkrum götum hluta úr degi.
Lesa meira![Skólasetning Flataskóla 2018](/media/fretta-myndir/small/skolasetning_h2018.jpg)
Grunnskólar í Garðabæ settir
Miðvikudaginn 22. ágúst sl. voru grunnskólar í Garðabæ settir og nemendur tóku að streyma að eftir sumarfrí. Það verða rúmlega 2500 börn í 1.-10. bekk í Garðabæ í vetur, þar af um 200 börn í 1. bekk. Fjölmennustu skólarnir eru Hofsstaðaskóli, Flataskóli og Garðaskóli með um 500 nemendur hver.
Lesa meira![Vígsla vallarins](/media/fretta-myndir/small/frisbigolfvollur_vifilsstadir_vigsla02.jpg)
Nýr frisbígolfvöllur í Garðabæ
Nýr frisbígolfvöllur var opnaður á Vífilsstöðum fimmtudaginn 16. ágúst sl. en nokkrir bæjarfulltrúar mættu á grasið til að vígja hann formlega.
Lesa meira![PMT foreldrafærni](/media/fretta-myndir/small/pmt-foreldrafaerni2.jpg)
PMTO foreldrafærninámskeið
PMTO (Parent Management Training) Foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á fimmtudögum kl 16.00– 18:00 í alls átta skipti haustið 2018. Námskeiðið hefst þann 13. september og lýkur 1. nóvember.
Lesa meira![Séð yfir Garðabæ](/media/byggingar-i-gardabae/small/Turn-tekin-ur-kirkjuturni.jpg)
Skólabíll úr Urriðaholti hefur akstur fimmtudaginn 23. ágúst
Skólabíll verður í boði úr Urriðaholti fyrir þau börn sem fara í grunnskóla í Garðabæ annan en Urriðaholtsskóla
Lesa meira![Opnun Ásgarðslaugar](/media/fretta-myndir/small/asgardslaug_opnun190418-5-.jpg)
Breyttur afgreiðslutími Ásgarðslaugar
Breyting verður á afgreiðslutíma í Ásgarðslaug um helgar frá og með 25. ágúst.
Lesa meira![Tún- og Lækjarfit](/media/fretta-myndir/small/tun-og-laekjarfit.jpg)
Vatnslaust í Túnfit og húsum nr. 13-21 í Lækjarfit frá kl. 22 þriðjudaginn 21. ágúst
Vegna viðhaldsvinnu þarf að loka fyrir vatn í kvöld kl. 22 í Túnfit og í húsum númer 13-21 í Lækjarfit. Einnig geta orðið trufanir á rennsli og þrýstingi í öðrum hverfum svo sem á Álftanesi
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða