30. ágú. 2018

Lýðheilsugöngur í september

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september.  Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land.  Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum. 

  • Lýðheilsuganga 2017
    Frá lýðheilsugöngu 2017

Garðabær tekur þátt í verkefni Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september.  Alla miðvikudaga getur almenningur tekið þátt í lýðheilsugöngum um allt land.  Þetta er annað árið í röð sem blásið er til þessa átaks en göngurnar eru um leið áframhald vinsælla sögu- og fræðslugangna Garðabæjar sem hafa verið farnar á undanförnum árum. 

Göngurnar hefjast kl. 18:00 alla miðvikudaga vítt og breitt um landið og er fyrsta gangan miðvikudaginn 5. september.  Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem eru uþb 60-90 mínútur að lengd. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk á öllum aldri til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. 

Taktu með þér vin í göngu miðvikudaginn 5. september

Boðið verður upp á göngur í Garðabæ miðvikudagana 5., 12., 19. og 26. september.  Vinátta er þema fyrstu göngunnar sem verður farin frá Sjálandsskóla við Löngulínu miðvikudaginn 5. september kl. 18.  Svandís Ríkharðsdóttir íþróttakennari leiðir göngufólk í hressingargöngu meðfram strandlengjunni og göngumenn fá tækifæri til að prófa nýja hreystigarðinn við Arnarnesvog.

Miðvikudaginn 12. september verður haldið í hressingargöngu frá íþróttamiðstöðinni Ásgarði og m.a. staldrað við hjá nýjum hreystigarði við Sunnuflöt. Miðvikudaginn 19. september verður gengið í Heiðmörkinni frá nýju bílastæði við Búrfellsgjá/Selgjá.  Síðasta gangan verður 26. september en þá verður gengið frá Bessastöðum að Skansinum.   

Góður félagsskapur

Garðbæingar eru hvattir til að taka þátt í göngunum þar sem boðið verður upp á fróðleik, auðvelda hreyfingu og umfram allt góðan félagsskap göngumanna. 

Fyrsta gangan á Facebook