Fréttir: september 2017

Fyrirsagnalisti

Eyjólfur Örn Jónsson sálfræðingur í Sjálandsskóla

29. sep. 2017 : Forvarnavika í leik- og grunnskólum 2.-6. október

Dagana 2.-6. október verður haldin forvarnavika í leik- og grunnskólum Garðabæjar. Þema vikunnar er snjalltækjanotkun, líðan og svefn. Í vikunni verður haldinn opinn fræðslufundur fyrir foreldra  þar sem fjallað verður um umgengni við snjalltæki og hvað beri að varast.

Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

28. sep. 2017 : Gengið að Vífilsstaðaseli í Heiðmörk

Miðvikudaginn 27. september var haldið í sögugöngu að Vífilsstaðaseli í Selholti í Heiðmörk undir leiðsögn Ragnheiðar Traustdóttur fornleifafræðings. Lagt var af stað frá bílaplani við Heiðmerkurvegið og gengið þaðan með hlíðinni upp veginn að selinu. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

26. sep. 2017 : Lokanir vegna kvikmyndatöku og framkvæmda

Þriðjudaginn 26. september frá kl. 09:00-20:00 fer fram upptaka á kvikmynd í nokkrum götum Garðabæjar. Einhverjar lokanir verða vegna þessa á eftirfarandi götum: Garðatorgi, Kirkjulundi, Vífilsstaðavegi, Karlabraut, Hnoðraholtsbraut og Vetrarbraut. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

22. sep. 2017 : Fræðst um sögu merkra húsa á Álftanesi

Miðvikudaginn 20. september var haldið í göngu um Álftanes þar sem Pétur Ármannsson arkitekt sagði frá sögu merkra húsa á Álftanesi. Þrátt fyrir rigningarveður var mjög góð þátttaka í göngunni en hátt í 70 manns mættu í gönguna. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

22. sep. 2017 : Móaflöt erfið yfirferðar vegna framkvæmda, gangandi vegfarendur hvattir til að nýta sér aðrar leiðir

Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun lagna í Móaflöt og Hagaflöt. Af þeim völdum er Móaflötin mjög erfið yfirferðar fyrir bæði gangandi vegfarendur og fyrir bíla. Gangandi vegfarendur sem og akandi eru því beðnir um að nýta sér aðrar leiðir í gegnum Flatirnar en um Móaflöt. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

22. sep. 2017 : Nýjar merkingar á göngu- og hjólastíg í Sjálandshverfi

Fimmtudaginn 21. september sl. fór hópur nemenda úr Sjálandsskóla í stutta hjólaferð í nágrenni skólans ásamt Gunnari Einarssyni bæjarstjóra Garðabæjar og Jónu Sæmundsdóttur formanni umhverfisnefndar bæjarins. Hjólaferðin var hluti af dagskrá Samgönguviku sem lýkur 22. september. Hjólað var um göngu- og hjólastíg sem liggur um Sjálandshverfið en þar hafa nokkri kaflar stígsins verið málaðir m.a. með rauðum fletum á nokkrum stöðum. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

20. sep. 2017 : Uppskeruhátíð skólagarðanna var haldin sl. laugardag

Laugardaginn 16. september var uppskeruhátíð skólagarða Garðabæjar haldin í mildu haustveðri. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

18. sep. 2017 : Lokanir á Vífilsstaðavegi vegna framkvæmda

Framkvæmdir við nýtt hringtorg á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Karlabrautar/Brúarflatar eru komnar langt á veg. Þessa dagana er verið að vinna við hellulögn á gangbrautunum við hringtorgið á Vífilsstaðavegi. Á meðan á þeirri vinnu stendur verða miklar tafir á umferð um Vífilsstaðaveg þar sem loka þarf akreinum á meðan unnið er að hellulögninni. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

15. sep. 2017 : Fallegt haustveður í lýðheilsugöngu frá Ásgarði

Það var fallegt veður þegar haldið var af stað í lýðheilsugöngu undir þemanu vinátta frá Ásgarði miðvikudaginn 13. september sl. Þátttakendur voru á öllum aldri, sá yngsti 10 ára og elsti 80+. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

15. sep. 2017 : Garðabær tekur þátt í samgönguviku 2017

Garðabær tekur þátt í Evrópsku samgönguvikunni sem verður haldin 16.-22. september nk. Af því tilefni verður tilraunaverkefni um hraðahindrandi aðgerðir á göngu- og hjólastíg í Sjálandshverfinu kynnt formlega fimmtudaginn 21. september kl. 11. Lesa meira
Séð yfir Garðabæ

12. sep. 2017 : Haustgróðursetningar grunnskólanemenda

Í september hafa nemendur 4. bekk úr Álftanesskóla og Hofsstaðaskóla gróðursett birkiplöntur í landi Bessastaða. Plönturnar fá skólarnir úthlutað úr Yrkjusjóði sem frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti stofnaði. Lesa meira
Erasmus styrkþegar úr skólum í Garðabæ 2017

12. sep. 2017 : Skólar í Garðabæ hlutu Erasmus styrki

Öll skólastig í Garðabæ hlutu styrk í flokki fjölþjóðlegra samstarfsverkefna Erasmus+ árið 2017. Sérstakur verkefnaflokkur er fyrir skólaverkefni þar sem megináherslan er á samstarf skóla, starfsmanna þeirra og nemenda.

Lesa meira
Síða 1 af 2