Fréttir: janúar 2018
Fyrirsagnalisti
Bein útsending af íbúafundi í Sjálandsskóla hefst kl. 17:30
Bein útsending af íbúafundinum í dag hefst kl. 17:30 á fésbókarsíðu Garðabæjar
Lesa meiraSafnanótt og sundlaugafjör í Garðabæ föstudaginn 2. febrúar
Karlmenn í leikskólum
Þriðjudaginn 23. janúar sl. var haldinn fræðslufundur fyrir karlmenn sem starfa innan leikskóla í Garðabæ. Ragnar Róbertsson, leikskólakennari og deildarstjóri í leikskólanum Laugasól í Reykjavík, var gestur fundarins. Á fundinum lýsti hann vali sínu á framtíðarstarfi sem leikskólakennari og þá þætti sem eru mest gefandi í starfinu.
Lesa meiraNiðurstöður úr viðhorfskönnun um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun
Haustið 2017 var gerð viðhorfskönnun meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun. Könnunin var unnin sem liður í jafnréttisáætlun Garðabæjar fyrir árin 2014-2018. Markmið jafnréttisáætlunar Garðabæjar er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.
Lesa meiraStaða framkvæmda við Ásgarðslaug
Endurbætur á sundlauginni í Ásgarði og rýmum innandyra er ein stærsta framkvæmdin sem hefur verið í gangi hjá Garðabæ á liðnu ári. Miðvikudaginn 24. janúar sl. var boðið til opins kynningarfundar um stöðu framkvæmda við Ásgarðslaug. Hópur fastagesta við Ásgarðslaug óskaði eftir að fá kynningu á stöðu framkvæmdanna og þeim ásamt öllum sem áhuga höfðu var boðið að koma í heimsókn í laugina.
Lesa meiraFræðsla um svefnvenjur yngstu barnanna
Arna Skúladóttir sérfræðingur í barnahjúkrun hélt nýverið fyrirlestur í Garðabæ fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla í Kraganum (öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur) undir heitinu „Samspil líðan og svefns á streitu hjá börnum".
Lesa meiraBjóðum í samtal – tveir fundir framundan
Miðvikudaginn 24. janúar sl.var haldinn íbúafundur í hátíðarsal Álftaness í íþróttamiðstöðinni. Fundurinn var annar í röðinni af fjórum íbúafundum í Gaðrabæ undir yfirskriftinni Bjóðum í samtal. Ágætis mæting var á fundinn á Álftanesinu þar sem fundarmenn hlustuðu á örkynningar
Lesa meiraGóð mæting á íbúafund
Góð mæting var á íbúafundinn sem var haldinn miðvikudaginn 17. janúar sl. í sal Toyota í Kauptúni. Íbúafundurinn var sá fyrsti í röð íbúafunda sem verða haldnir næstu miðvikudaga út janúar og fyrstu vikuna í febrúar. Á þennan fyrsta fund voru íbúar í Urriðaholti, Vífilsstöðum og Hnoðraholti sérstaklega velkomnir en hverfaskipting íbúafundanna er eingöngu leiðbeinandi og allir íbúar eru velkomnir á þann fund eða fundi sem hentar þeim best
Lesa meiraÖflug nágrannavarsla mikilvæg
Síðustu daga og vikur virðist hafa verið mikið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu og þar á meðal í Garðabæ.
Lesa meiraBein útsending af íbúafundi í dag hefst kl. 17:30
Bein útsending af íbúafundi Garðabæjar sem verður haldinn í dag miðvikudaginn 17. janúar verður á fésbókarsíðu Garðabæjar og hefst þar kl. 17:30.
Lesa meiraMikil ánægja með þjónustu Garðabæjar
Neysluvatn í Garðabæ í lagi
Að gefnu tilefni vegna fréttar 15. janúar um að jarðvegsgerlar hafa mælst í neysluvatni/kalda vatninu fyrir sum hverfi Reykjavíkurborgar er rétt að taka fram að það er í lagi með neysluvatnið/kalda vatnið í Garðabæ. Garðabær fær kalt vatn úr vatnsbólum í Vatnsendakrika þar sem ný mæling sýnir að þar eru ekki jarðvegsgerlar.
Lesa meira- Fyrri síða
- Næsta síða