Bein útsending af íbúafundi í dag hefst kl. 17:30
Bein útsending af íbúafundi Garðabæjar sem verður haldinn í dag miðvikudaginn 17. janúar verður á fésbókarsíðu Garðabæjar og hefst þar kl. 17:30.
-
Bjóðum í samtal
Bein útsending af íbúafundi Garðabæjar sem verður haldinn í dag miðvikudaginn 17. janúar verður á fésbókarsíðu Garðabæjar og hefst þar kl. 17:30.
Vefútsending frá fundinum verður á fésbókarsíðu Garðabæjar - byrjar kl. 17:30
Bjóðum í samtal
Hverfafundir - íbúafundir með bæjarstjóra og sviðsstjórum Garðabæjar
Miðvikudaga í janúar og febrúar kl. 17:30 – 19:00
Á dagskrá fundanna verður m.a.
• Inngangur frá bæjarstjóra
• Nágrannavarsla og þjónusta
• Framkvæmdir í nærumhverfi og skipulagsmál
• Fræðslumál og fjölskyldumál
• Um hvað vilt þú tala? Innsendar fyrirspurnir bæjarbúa og fyrirspurnir úr sal – umræður
Vonumst til að sjá sem flesta íbúa taka samtalið við okkur á fundunum.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
• Boðið verður upp á súpu og brauð.
• Íbúum gefst kostur á að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina á vef Garðabæjar, gardabaer.is.
• Allir fundir verða sendir út beint á vef Garðabæjar.
Fyrirspurnir og umræðuefni - sendu inn ábendingu!
Íbúar eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir fyrir fundina hér á vef Garðabæjar. Einnig er hægt að senda inn óskir um umræðuefni á fundunum hér.
Dagsetning |
Hverfi |
Fundarstaður |
17. janúar |
Urriðaholt, Vífilsstaðir og Hnoðraholt |
Fundarsalur Toyota, Kauptúni |
24. janúar |
Álftanes |
Hátíðarsalur Álftaness, íþróttamiðstöðinni |
31. janúar |
Akrahverfi, Arnarnes, Ásar, Sjáland, Garðahraun/Prýði, Hleinar |
Sjálandsskóli |
7. febrúar |
Hæðahverfi, Flatahverfi, Byggðir, Búðir, Bæjargil, Fitjar, Hólar, Garðatorg, Grundir, Móar, Lundir, Mýrar, Tún |
Flataskóli |
Hverfaskiptingin er leiðbeinandi, allir fundir eru opnir öllum og íbúar geta mætt á þann fund sem hentar best.
Frá vinstri: Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, Eysteinn Haraldsson forstöðumaður tækni- og umhverfissviðs og Bergljót Sigurbjörnsdóttir forstöðumaður fjölskyldusviðs.