Fréttir: desember 2022

Fyrirsagnalisti

Brenna í Garðabæ

28. des. 2022 : Áramótabrennur í Garðabæ

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöldi, við Sjávargrund kl. 21 og á Álftanesi kl. 20:30.  

Lesa meira

27. des. 2022 : Tafir á sorphirðu vegna veðurs

Vegna mikillar snjókomu undanfarna daga hafa orðið tafir á sorphirðu í íbúðagötum í bænum.

Lesa meira

23. des. 2022 : Listasmiðja fyrir flóttabörn í Garðabæ

Undanfarið ár ár hefur Lionslúbburinn Eik í Garðabæ haldið úti listasmiðju fyrir flóttabörn í Garðabæ. Markmiðið með listasmiðjunni er að hjálpa börnum sem hafa hrakist frá heimalandi sínu og eru flóttamenn í ókunnu landi þar sem kringumstæður eru þeim framandi á allan hátt.

Lesa meira
Íþróttafólk Garðabæjar

23. des. 2022 : Taktu þátt í vali á íþróttakonu og íþróttakarli Garðabæjar

Fimm konur og fimm karlar hafa verið tilnefnd af íþrótta- og tómstundaráði Garðabæjar (ÍTG) til íþróttakonu og íþróttakarls Garðabæjar 2022. Vefkosning hefst 23. desember og stendur yfir til og með 1. janúar 2023.

Lesa meira

22. des. 2022 : Afgreiðslutími um jól og áramót

Afgreiðslutími ráðhúss Garðabæjar, Bókasafns Garðabæjar, Hönnunarsafns Íslands og sundlauga Garðabæjar um jól og áramót. Starfsfólk Garðabæjar óskar íbúum Garðabæjar sem og viðskiptavinum gleðilegra jóla.

Lesa meira
Sundlaugin á Álftanesi

19. des. 2022 : Sundlaugar opna aftur kl. 12 miðvikudag 21. desember

Uppfært 21/12 kl. 09:15: Sundlaugar í Garðabæ opna aftur kl. 12:00 miðvikudaginn 21. desember. Búast má við því að pottar og sundlaugar verði í kaldara lagi fyrst um sinn en komið í samt lag síðdegis í dag.

Lesa meira

19. des. 2022 : Flataskóli hlaut viðurkenningu frá UNICEF sem réttindaskóli

Í síðustu viku tók réttindaráð Flataskóla við viðurkenningu frá Unicef um að eftir úttekt þá hefur skólinn rétt á að kalla sig áfram réttindaskóla Unicef. Það var vel við hæfi að hafa athöfnina í lok þemadaga sem voru með yfirskriftinni „við erum öll jöfn“ sem er bein vísun í 2. grein barnasáttmálans.

Lesa meira

16. des. 2022 : Fjölmargir tónleikar á aðventunni

Fjölmargir menningarviðburðir hafa verið í boði á aðventunni í Garðabæ og verða áfram í desember. Framundan eru tónleikar með Diddú ásamt blásarasextett, tónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín og kertaljósatónleikar Camerarctica. 

Lesa meira

16. des. 2022 Fjármál Stjórnsýsla : Íbúar hvattir til að kynna sér fjárhagsáætlun Garðbæjar

Íbúar eru hvattir til að kynna sér fjárhagsáætlun Garðabæjar en með áætluninni fylgdi greinargerð sem útskýrir helstu áherslur í áætluninni. Þá má einnig finna nokkur fræðandi myndbönd um fjárhagsáætlun Garðabæjar á vefnum.

Lesa meira
Flokkunarkerfi_sorphirða

16. des. 2022 Umhverfismál Þjónusta : Tunnuskipti vegna samræmds flokkunarkerfis hefjast í vor

Eins og fram hefur komið verður nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu innleitt á vormánuðum 2023 þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili.

Lesa meira
Þann 13. desember, skrifuðu bæjarstjórar Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Kjósarhrepps og framkvæmdastjóri SSH undir samning um rekstur sameiginlegs umdæmisráðs

14. des. 2022 : Nýtt umdæmisráð og barnaverndarnefndir lagðar niður

Þann 13. desember, skrifuðu bæjarstjórar Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Kjósarhrepps og framkvæmdastjóri SSH undir samning um rekstur sameiginlegs umdæmisráðs barnaverndar sem tekur til starfa nú um áramót.

Lesa meira
Frá úthlutun Sóley styrktarsjóðs 2022.

14. des. 2022 : Úthlutun styrkja úr Sóley

 Hinn 12. desember sl. fór fram úthlutun styrkja úr Sóleyju, styrktarsjóði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, til nýsköpunarverkefna.

Lesa meira
Síða 1 af 2