28. des. 2022

Áramótabrennur í Garðabæ

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöldi, við Sjávargrund kl. 21 og á Álftanesi kl. 20:30.  

  • Brenna í Garðabæ
    Áramótabrenna

Í ár verður loks hægt að vera með áramótabrennur á ný eftir hlé síðustu ár vegna fjöldatakmarkana sem þá voru í gildi.  

Tvær áramótabrennur verða í Garðabæ á gamlárskvöldi, ein við Sjávargrund og önnur á Álftanesi.

Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21 á gamlárskvöld 31. desember. Knattspyrnudeild Stjörnunnar sér um brennuna en Hjálparsveit skáta í Garðabæ sér um flugeldasýningu.

Sjávargrund á Google Maps - korti (ATH slóð á kort sýnir hvar gatan Sjávargrund er en brennan sjálf er staðsett vestan við nær sjónum við Strandstíginn)

Á Álftanesi verður gamlársbrennan nærri ströndinni norðan við Gesthús. Aðkoma er frá Bakkavegi. Kveikt verður í brennunni á Álftanesi kl. 20.30. Brennan er í umsjón UMFÁ.

Kort á Google Maps sem sýnir Bakkaveg.