Safnanótt og sundlaugafjör í Garðabæ föstudaginn 2. febrúar
Í viðburðadagatalinu á vef Garðabæjar, gardabaer.is, er hægt að sjá tímasetta dagskrá í Garðabæ á safnanótt og í sundlaugafjörinu en jafnframt er hægt að sjá dagskrá annars staðar á höfuðborgarsvæðinu á vef Vetrarhátíðar, www.vetrarhatid.is.
Opið hús í Króki á Garðaholti á Safnanótt
Burstabærinn Krókur á Garðaholti verður með opið hús á Safnanótt frá kl. 18-23. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Börn sem koma í heimsókn í Krók á Safnanótt geta tekið þátt í ratleik á staðnum auk þess sem safnvörður veitir leiðsögn. Bílastæði eru við samkomuhúsið á Garðaholti, en Krókur staðsettur á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar.Viðburður á fésbókarsíðu Króks
Spákona, axlarnudd, húlludúllan, Nanna Rögnvaldar og Svavar Knútur
Í Bókasafni Garðabæjar við Garðatorg verður skemmtileg dagskrá fyrir alla aldurshópa á Safnanótt frá kl. 18-23. Barnakór Sjálandsskóla syngur fyrir gesti safnsins, Húlladúllan mætir og sýnir listir sínar og yngstu gestirnir geta tekið þátt í húllasmiðju og einnig verða ratleikir í boði á safninu. Hin sívínsæla spákona verður á sínum stað og tímapantanir á staðnum. Í ár geta bókasafnsgestir einnig pantað sér tíma í 10 mínútna axlarnuddi á staðnum. Nanna Rögnvaldardóttir matarbloggari og höfundur mætir í safnið og fjallar um matargerð fyrr og nú. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar spila fyrir gesti safnsins og kl. 21:30 stígur Svavar Knútur tónlistarmaður á svið í safninu og spilar og syngur fyrir gesti. Það verður sannkölluð kaffihúsastemning í safninu þetta kvöld.Viðburðir á fésbókarsíðu bókasafnsins.
Hlustunarpartý og stuð í Hönnunarsafninu á Safnanótt
Á Safnanótt verður opið til kl. 23 um kvöldið og ókeypis aðgangur inn á sýningar og dagskrá safnsins. Í safninu verður boðið upp á leiðsögn og spjall kl. 20:30 um sýninguna ,,Íslensk plötuumslög” og kl. 22 verður boðið upp á leiðsögn og spjal um sýninguna ,,Íslenska lopapeysan, uppruni, saga og hönnun”. Í tengslum við sýninguna Íslensk Plötuumslög verður boðið upp á HLUSTUNARPARTÝ kl. 21.00 – 21.40. Um er að ræða verk sem teygir út hugmyndina um dans og kóreógrafíu. Tuttuguogfimm unglingar taka þátt í verkinu sem frumsýnt var á dansátíðinni Everybody´s Spectacular á síðasta ári og hlaut frábærar viðtökur.Hlustunarpartý - viðburður á fésbókarsíðu Hönnunarsafnsins.
Opið hús á Bessastöðum á Safnanótt kl. 17-21
Föstudaginn 2. febrúar n.k. verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi sem liður í Vetrarhátíð og Safnanótt 2018. Gestum býðst að skoða Bessastaðastofu og kirkjuna milli klukkan 17:00 og 21:00. Auk hinna merku steinhúsa frá 18. öld geta gestir virt fyrir sér sýnishorn gjafa, sem forseta hafa borist og fornleifar sem veita innsýn í búsetu á Bessastöðum frá landnámstíð.Þá mun fyrsti forsetabíll lýðveldissögunnar, Packard bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði Bessastaða en bifreiðin er ríflega sjötug, árgerð 1942
Sundlaugafjör í Álftaneslaug á föstudeginum 2. febrúar
Álftaneslaug verður með sundlaugafjör í lauginni frá kl. 18-22 föstudagskvöldið 2. febrúar nk. í tilefni af Vetrarhátíð. Ókeypis aðgangur er í sundlaugina á sundlaugafjörinu. Eins og fyrri ár verður boðið upp á dótasund í innilauginni fyrri part kvölds. Sunddeild Stjörnunnar ætlar að endurtaka leikinn frá því í fyrra og bjóða upp á örkennslu í sundtækni frá kl. 18-19. Hið vinsæla öldudiskó verður á sínum stað þegar öldulaugin verður sett í gang kl. 19:30. Söngkonan María Magnúsdóttir ásamt Birgi Rafni Gíslasyni gítarleikara flytja frumsamin lög MIMRU ásamt þekktum lögum í nýjum búningi við sundlaugarbakkann kl. 20 um kvöldið. Kl. 20:30 hefst hið vinsæla Aqua Zumba í útilauginni sem sundlaugagestir hafa fjölmennt í síðustu ár. Að loknum zumbatíma er hægt að slaka á í sundfloti í innilauginni eða taka því rólega í heitu pottunum.
Sundlaugafjör - viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar