22. ágú. 2018

PMTO foreldrafærninámskeið

PMTO (Parent Management Training) Foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á  fimmtudögum kl 16.00– 18:00 í alls átta skipti haustið 2018. Námskeiðið hefst þann 13. september og lýkur 1. nóvember.

  • PMT foreldrafærni
    PMT foreldrafærni

PMTO (Parent Management Training) Foreldrafærninámskeið verður haldið í Garðabæ á  fimmtudögum kl 16.00– 18:00 í alls átta skipti haustið 2018. Námskeiðið hefst þann 13. september og lýkur 1. nóvember.

Námskeiðið fer fram í húsakynnum bæjarskrifstofa Garðabæjar að Garðatorgi 7.

PMTO námskeið eru fyrir foreldra barna með væga hegðunarerfiðleika. Foreldrar læra aðferðir til að draga úr hegðunarerfiðleikum barns og stuðla að góðri aðlögun þess með því að:

-       Nota skýr fyrirmæli

-       Hvetja börn til jákvæðrar hegðunar

-       Setja hegðun barna mörk

-       Rjúfa vítahring í samskiptum

-       Vinna með tilfinningar og samskipti

-       Hafa markvisst eftirlit

-       Leysa ágreining

-       Markviss tengsl heimilis og skóla

Nánari upplýsingar um aðferðina er að finna á heimasíðu pmto.is

Þátttökugjald er kr 12.500 fyrir fjölskyldu. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar en Gert er ráð fyrir að báðir foreldrar komi á námskeiðið. Lágmarksþátttaka þarf að vera (8 fjölskyldur) svo námskeiðið verði haldið.


Skráning fer fram á Minn Garðabær þar sem finna má umsókn um PMTO námskeið.   

Umsóknarfrestur er til og með 5. september.  Svar um pláss á námskeiði verða send 7. september. 

Leiðbeinendur eru Hildigunnur Árnadóttir félagsráðgjafi og PMTO meðferðaraðili, Margrét H. Þórarinsdóttir sérkennslufulltrúi og PMTO meðferðaraðili, Sólveig Steinsson þroskaþjálfi og PMTO meðferðaraðili og Thelma Björk Guðbjörnsdóttir félagsráðgjafi og PMTO meðferðaraðili. 

Auglýsingin um námskeiðið

Frétt um námskeiðið var haldið í fyrra.