Grunnskólar í Garðabæ settir
Miðvikudaginn 22. ágúst sl. voru grunnskólar í Garðabæ settir og nemendur tóku að streyma að eftir sumarfrí. Það verða rúmlega 2500 börn í 1.-10. bekk í Garðabæ í vetur, þar af um 200 börn í 1. bekk. Fjölmennustu skólarnir eru Hofsstaðaskóli, Flataskóli og Garðaskóli með um 500 nemendur hver.
-
Skólasetning Flataskóla 2018

Þá hefur nýr grunnskóli bæst í hópinn frá því í fyrra þar sem Urriðaholtsskóli tekur á móti börnum í 1-4. bekk en aðeins hluti skólans hefur verið tekinn í notkun.
Almennt hefur gengið vel að manna stöður í skólum og tómstundaheimilum Garðabæjar.
Frekari upplýsingar um skólastarfið má finna á heimasíðum grunnskóla Garðabæjar.
- Vefur Alþjóðaskólans
- Vefur Álftanesskóla
- Vefur Barnaskóla Hjallastefnunnar
- Vefur Flataskóla
- Vefur Garðaskóla
- Vefur Hofsstaðaskóla
- Vefur Sjálandsskóla
- Vefur Urriðaholtsskóla