17. jan. 2023

Samningur við Sjómannadagsráð um rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis

Í desember sl. endurnýjuðu Garðabær og Sjómannadagsráð samstarfssamning frá árinu 2017 um rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar.

  • Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar.
    Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar.

Í desember sl. endurnýjuðu Garðabær og Sjómannadagsráð samstarfssamning frá árinu 2017 um rekstur Ísafoldar hjúkrunarheimilis og dagdvalar.

Sjómannadagsráð rekur hjúkrunarheimilið Ísafold sem sjálfstæðan rekstraraðila undir merkjum Hrafnistu við Strikið 3 í Garðabæ. Í hjúkrunarheimilinu eru 60 hjúkrunarrýma og í dagdvölinni eru tuttugu rými, þar af sextán almenn og fjögur rými fyrir einstaklinga með heilabilun.

Hrafnista er í dag ein stærsta heilbrigðisstofnun landsins með starfsemi í fimm sveitarfélögum og þjóna Hrafnistuheimilin á annað þúsund öldruðum á hverjum degi. Hrafnista skuldbindur sig til að reka hjúkrunarheimilið eins markvisst og hagkvæmt og kostur er en alltaf með áherslu á markmið Hrafnistu um andlega, líkamlega og félagslega vellíðan íbúa með gildi Hrafnistu að leiðarljósi.

Hjá Hrafnistu er til staðar mikil sérþekking og reynsla sem kemur starfseminni til góða. Eins og á öðrum Hrafnistuheimilum er á Ísafold er starfrækt Hrafnistuútgáfa af „Lev og bo“ hugmyndafræði.