• 7.6.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 14.6.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 21.6.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 28.6.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 5.7.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 12.7.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 19.7.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 26.7.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 2.8.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 9.8.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 16.8.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 23.8.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti
  • 30.8.2020, 12:00 - 17:00, Krókur á Garðaholti

Lokað í Króki á Garðaholti

  • Krókur á Garðaholti

Bærinn Krókur á Garðaholti verður lokaður sunnudagana 2. og 9. ágúst nk. vegna samkomutakmarkana.

ATH Bærinn Krókur á Garðaholti verður lokaður sunnudagana 2. og 9. ágúst nk. vegna samkomutakmarkana.

 

Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar (júní, júlí, ágúst) frá kl. 12-17.

Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.

Krókur á facebook

Um burstabæinn Krók

Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. 

Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar. 

Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.

Sumarmessur í Garðakirkju

Í sumar er bærinn Krókur í samstarfi við Sumarmessur í Garðakirkju og alla sunnudaga í sumar verður messa í Garðakirkju kl. 11. Að lokinni sumarmessu verður boðið upp á veitingar í hlöðunni við Krók og jafnvel óvæntar uppákomur. Krókur er í göngufæri frá Garðakirkju.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni kirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, þ.e. Ástjarnar-, Hafnarfjarðar-, Víðistaða-, Bessastaða-, Vídalíns- og Fríkirkjunnar.