• 10.3.2020, 17:30, Álftanesskóli

Opið hús vegna innritunar nemenda í Álftanesskóla

  • Innritun í grunnskóla

Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk í Álftanesskóla haustið 2020 verður þriðjudaginn 10. mars kl. 17:30.

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Upplýsingar um innritun fyrir skólaárið 2020-2021.


ÁLFTANESSKÓLI
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2020 þriðjudaginn 10. mars kl. 17:30.
Kynningarfundur verður á sal skólans. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og frístundaheimilið Álftamýri í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
S. 540 4700
alftanesskoli.is