27. feb. 2020

Innritun fyrir skólaárið 2020-2021

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2014) og 8. bekk (f. 2007) fer fram dagana 9. - 13. mars nk.

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2014) og 8. bekk (f. 2007) fer fram dagana 9. - 13. mars nk. Innritað er hér á Mínum Garðabæ. Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 13. mars nk.

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 13. mars nk.
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Sama gildir fyrir sérstækt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk.  Hún er einnig á Mínum Garðabæ. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.

Upplýsingar um kynningar/opin hús hjá grunnskólum Garðabæjar í mars fyrir forráðamenn nýnema.

Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:


Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2020-2021 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt á Mínum Garðabæ .

Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar.