27. feb. 2020

Opin hús/kynningar grunnskóla vegna innritunar nemenda

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. 

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Grunnskólarnir í Garðabæ bjóða í heimsókn og verða með opin hús/kynningar í húsnæði skólanna. Gestum gefst þá kostur á að skoða skólana í fylgd starfsmanna og/eða nemenda.

Allir grunnskólarnir bjóða foreldrum og forráðamönnum einnig að koma í heimsóknir á öðrum tíma. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólanna sé óskað eftir því. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að skoða vefsíður skólanna. Þar má finna gagnlegar upplýsingar og margs konar fróðleik um skólastarfið.

Upplýsingar um innritun fyrir skólaárið 2020-2021.

Kynningar verða sem hér segir:

ALÞJÓÐASKÓLINN (International School of Iceland)
Foreldrar og forráðamenn eru ávallt velkomnir á þeim tíma sem hentar þeim best en nauðsynlegt er að hafa samband á undan til að bóka kynningu og leiðsögn um skólann.
S. 590 3106 eða 690 3100
internationalschool.is


ÁLFTANESSKÓLI
Opið hús fyrir foreldra barna sem hefja nám í 1. bekk haustið 2020 þriðjudaginn 10. mars kl. 17:30.
Kynningarfundur verður á sal skólans. Að lokinni kynningu verður gestum boðið að skoða skólann og frístundaheimilið Álftamýri í fylgd starfsmanna. Foreldrar geta einnig komið í heimsókn og kynnt sér skólann eftir samkomulagi.
S. 540 4700
alftanesskoli.is


BARNASKÓLI HJALLASTEFNUNNAR
Kynningarfundur fyrir börn sem hefja nám á 6 ára kjarna næsta haust og fjölskyldur þeirra, verður haldinn fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00 á sal skólans. Kynning verður á skólastarfinu og skólahúsnæði verður til sýnis. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 555 7710
bskgbr.hjalli.is


FLATASKÓLI
Börn sem hefja nám í 1. bekk næsta haust og foreldrar þeirra eru velkomnir í Flataskóla til að kynna sér starfið. Opið hús verður í skólanum þriðjudaginn 10. mars klukkan 17:00. Áhugasamir eru einnig velkomnir í heimsókn á skólatíma í samráði við stjórnendur. Hafið þá vinsamlegast samband á undan á netföngin olofs@flataskoli.is eða helgam@flataskoli.is.

Kynning á starfi í 5 ára bekk fyrir foreldra og forráðamenn verður þriðjudaginn 3. mars klukkan 17:00 í Flataskóla. Áhugasamir eru einnig velkomnir á öðrum tíma en eru þá hvattir til að hafa samband áður á netfangið olofs@flataskoli.is eða fanney@flataskoli.is 
S. 513 3500
flataskoli.is


GARÐASKÓLI
Kynningarfundir fyrir nemendur og foreldra verða haldnir þriðjudaginn 3. mars kl. 20:00 og miðvikudaginn 4. mars kl. 17:00 á sal skólans. Sagt verður frá helstu þáttum í starfi skólans og gestum síðan boðið að skoða skólann í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem komast ekki á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 590 2500
gardaskoli.is


HOFSSTAÐASKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn væntanlegra nemenda í 1. bekk haustið 2020 verður haldinn í skólanum þriðjudaginn 3. mars nk. kl. 17:30-18:30. Gestum er boðið að skoða skólann og frístundaheimilið Regnbogann. Starfsmenn kynna helstu áherslur í skólastarfinu í máli og myndum. Foreldrar annarra nýnema í 2. – 7. bekk eru velkomnir á kynninguna. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta skráð sig á skrifstofu skólans og fá þá boð um aðra kynningu eftir samkomulagi.
S. 590 8100
hofsstadaskoli.is


SJÁLANDSSKÓLI
Opið hús fyrir væntanlega nýnema og forráðamenn þeirra verður í skólanum miðvikudaginn 11. mars kl. 17:00-19:00. Gestum verður boðið að skoða skólann, félagsmiðstöðina Klakann (unglingastig) og frístundaheimilið Sælukot (yngsta stig) í fylgd starfsmanna og nemenda. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skrifstofu skólans og bókað kynningu eftir samkomulagi.
S. 590 3100
sjalandsskoli.is


URRIÐAHOLTSSKÓLI
Kynningarfundur fyrir foreldra væntanlegra nemenda í 1.-6. bekk verður haldinn í skólanum fimmtudaginn 5. mars nk. kl. 20:00. Kynning verður á skólastarfinu. Þeir sem ekki komast á fyrrgreindum tíma geta haft samband við skólann og bókað heimsókn eftir samkomulagi.
S. 591 9500
urridaholtsskoli.is