• 1.4.2025, 18:00, Hönnunarsafn Íslands

Opnun - Unndór Egill Jónsson

Sýningin eru hluti af HönnunarMars 2025. 

Unndór Egill Jónsson er myndlistarmaður sem skapar einstök húsgögn úr íslensku birki þar sem náttúrulegum og geómetrískum formum er teflt saman. Hugmyndafræðin á bak við verkin snýst um að blanda saman þessum andstæðu formum á þann hátt að þau styðji hvort annað og gefi tilfinningu fyrir einingu.

Handverkið leikur lykilhlutverk í að samruninn heppnist og til að undirstrika það hefur Unndór sett verkstæðið sitt upp á safninu. Þar er verkfærum listamannsins gert hátt undir höfði en þau eru forsenda þess að hægt er að móta efniviðinn. Húsgögnin eru unnin á staðnum og birtast eitt af öðru meðan á sýningunni stendur. Þau endurspegla tímann, náttúruna, verkvitið og hugvitið sem þau spretta úr.

Á sama tíma verður Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður með uppskeruhátíð en hún hefur verið í vinnustofudvöl í safninu undanfarnar vikur og Brynjar Sigurðarson vöruhönnuður opnar sýningu á Pallinum.