• 30.4.2022, 13:00 - 16:00, Miðgarður

Opnunarhátíð Miðgarðs

  • Opnunarhátíð Miðgarðs 30. apríl kl. 13-16

Laugardaginn 30. apríl kl. 13-16 verður opnunarhátíð Miðgarðs, fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri í Garðabæ. Allir velkomnir!

Bæjarbúar eru velkomnir á opnunarhátíð Miðgarðs, fjölnota íþróttahússins í Vetrarmýri, laugardaginn 30. apríl nk. frá kl. 13-16. Fjölbreytt skemmtidagskrá verður í boði á opnunarhátíðinni og gestum gefst kostur á að skoða íþróttamannvirkið sem þegar er komið í notkun fyrir æfingar en fyrsta æfingin var haldin í húsinu í febrúar á þessu ári.

DAGSKRÁ

  • Kl. 13:00 - 14:00 Bræðurnir Ómar og Óskar Guðjónssynir flytja ljúfa tóna í anddyri hússins 
  • Kl. 13:00 - 14:00 Dj Dóra Júlía þeytir skífum 
  • Um kl. 14:10  Bæjarlistamenn Garðabæjar 2021, leikararnir Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors, flytja ljóð
  • Um kl. 14:15  Ávörp bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar
  • Um kl. 14:20 Afhending viðurkenninga fyrir tillögur að nafninu Miðgarði
  • Um kl. 14:40 - 15:30 Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna stíga á stokk og fá til sín góða gesti úr Garðabæ
  • Um kl. 15:00 Vítaspyrnukeppni

Í boði allan tímann frá 13-16:

  • Boðið verður upp á skemmtilega þrautabraut fyrir börn
  •  Íþróttafélög bæjarins verða með kynningu á íþróttastarfi sínu.
  • Sýnikennsla við klifurvegginn
  • Knattþrautir
  • Kaffi, djús og kleinur verða í boði fyrir gesti og gangandi
  • Andlitsmálning fyrir börn

ATH Gestir eru hvattir til að koma gangandi eða hjólandi á staðinn, eða sameinast í bíla. Bílastæði eru við Miðgarð en auk þess er hægt að leggja bílum við leikskólana Mánahvol og Sunnuhvol sem eru staðsettir við hliðina á Vífilsstöðum. 

ALLIR VELKOMNIR Á OPNUNARHÁTÍÐ MIÐGARÐS!
Viðburður á fésbókarsíðu Garðabæjar

Nafnið Miðgarður

Garðabær efndi haustið 2021 til nafnasamkeppni um nafn á nýja fjölnota íþróttahúsinu í Garðabæ sem var öllum opin og íbúar hvattir til að taka þátt í. Nafn hússins, Miðgarður, var svo tilkynnt formlega í janúar á þessu ári. Samkvæmt goðafræðinni er Miðgarður miðja heimsins og sá staður þar sem mannfólkið býr. Það rímar vel við hugmyndir um fjölnota íþróttahúsið þar sem vonast er eftir lífi og fjöri á degi hverjum ásamt því að þar verður rými fyrir fjölbreytt viðfangsefni.

Fjölmargir bæjarbúar tóku þátt í nafnasamkeppninni og á opnunarhátíðinni á laugardaginn verða afhentar viðurkenningar til þeirra sem sendu inn tillögu um nafnið Miðgarð.