• 31.5.2025, 12:00, Bókasafn Garðabæjar

Opnunarhátíð sumarlesturs - myndabás og Blaðrarinn

Sumarlestur Bókasafns Garðabæjar hefst með pompi og prakt 31. maí.

Boðið verður upp á stórskemmtilegan myndabás allan daginn og Blaðrarinn mætir einnig til leiks og býr til blöðrudýr af ýmsum stærðum og gerðum frá kl. 12-14. Bókasafnið er opið frá kl. 11 til kl. 15.

Lestrardagbækur fyrir sumarlesturinn verða afhentar.

Hvað er Sumarlestur?
Sumarlestur er lestrarátak sem hvetur börn til að lesa í sumarfríi skólanna til að tapa ekki niður lestrargetu sinni. Börnin setja sér lestrarmarkmið, skrá lesturinn í lestrardagbókina og fá límmiða fyrir hverja lesna bók. Þau geta síðan fyllt út umsagnarmiða sem þau skila í lukkukassann og úr honum er dreginn lestrarhestur vikunnar hvern fimmtudag kl. 12 frá 12. júní til 14. ágúst, sem fær bók í verðlaun.

Uppskeruhátíðin er svo 23. ágúst þar sem glaðningar, gotterí og allskonar gleði verður við völd. En allir virkir þátttakendur fá glaðning frá bókasafninu.