• 23.6.2021, 11:00 - 11:45
  • 30.6.2021, 11:00 - 11:45
  • 7.7.2021, 11:00 - 11:45
  • 14.7.2021, 11:00 - 11:45
  • 21.7.2021, 11:00 - 11:45
  • 28.7.2021, 11:00 - 11:45
  • 4.8.2021, 11:00 - 11:45
  • 11.8.2021, 11:00 - 11:45
  • 18.8.2021, 11:00 - 11:45

Qigong í Bæjargarðinum í sumar

  • Qigong í Bæjargarðinum í Garðabæ

Í sumar ætla Garðabær og Tveir heimar að bjóða upp á Qigong hreyfilist í Bæjargarðinum í Garðabæ, íbúum bæjarins og öðrum gestum að kostnaðarlausu. Alla miðvikudaga kl. 11-11:45 frá 23. júní - 18. ágúst


Alla miðvikudaga kl. 11:00 -11:45- Í Bæjargarðinum, sunnan við Ásgarðssvæðið,  frá 23. júní – 18. ágúst 2021.

Á vegum Garðabæjar og Tveggja heima.
Leiðarar: Þórdís Filipsdóttir, Filip Woolford og Rakel Fleckenstein Björnsdóttir

QIGONG ÚTI Í SUMAR! er opin þjálfun og kennsla sem hentar öllum óháð aldri.
Qigong er kínversk hreyfilist og yfir 5000 ára lifandi hefð. Harvard læknaskólinn telur hana eina heilnæmustu hreyfingu sem hægt er að stunda og hvetur nú óspart til útbreiðslu Qigong og Tai Chi, sem er byggt á Qigong, í lýðheilsu- og lækningaskyni.

Allir velkomnir og nægt rými fyrir alla.
Léttur klæðnaður og alltaf eftir veðri, mælt með sumarvettlingum í vasa.

Viðburður á facebook.

Tímarnir utandyra í Bæjargarðinum

Tilvalið að koma gangandi á svæðið en fyrir þá sem koma akandi er bent á bílastæði við Ásgarð og Stjörnuheimilið. Qigong er haldið í Bæjargarðinum, sunnan við Ásgarðssvæðið, farið fram hjá Stjörnuheimilinu og inn með götunni Garðfit að opnu svæði sunnan við sandvelli og fótboltavöll í garðinum. Sjá kort hér fyrir neðan.
Baejargardur_qigong_stadsetning