• 29.9.2023, 17:00 - 22:00, Garðatorg - miðbær
  • 30.9.2023, 15:00 - 22:00, Garðatorg - miðbær

Rökkvan 2023

Tónlistin er í forgrunni á Rökkvunni en auk þess sýna myndlistarmenn og markaður með hönnun og list fer fram.

Listahátíðin Rökkvan fer fram í annað sinn 29. og 30. september á Garðatorgi 1-4. Listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru ungir tónlistarmenn í Garðabæ. Tónlistin er í forgrunni á Rökkvunni en auk þess sýna myndlistarmenn og markaður með hönnun og list fer fram.
 
Tónleikadagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur 29. september
17:00 Rökkvuhljómsveitin
18:00 Anna Bergljót ásamt hljómsveit
19:00 Dagskrá á Rökkvukránni
20:00 Piparkorn
21:00 MOSES HIGHTOWER
 
Laugardagur 30. september
15:00 Dagskrá á Rökkvukránni
17:00 Anya
18:00 Sigga Ózk
19:00 Dagskrá á Rökkvukránni
20:00 Kusk og Óviti
21:00 DIKTA
Dagskrá Rökkvunnar er ókeypis og öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Mói Ölgerðarfélag selur drykki á Rökkvukránni og ungir hönnuðir og listamenn sýna og selja afurðir sínar.
Rökkvan er í boði menningar- og safnanefndar Garðabæjar.