• 28.10.2022, 19:00 - 22:30, Garðatorg - miðbær

Rökkvan listahátíð á Garðatorgi

  • Rökkvan

Listahátíðin Rökkvan verður haldin í fyrsta sinn föstudaginn 28. október nk. kl. 19-22:30 á Garðatorgi 1-4. Hátíðina skipuleggja 6 ungir listamenn í samstarfi við menningarfulltrúa Garðabæjar. Garðatorg verður fullt af lífi, fjöri og list en hátíðin er ætluð öllum aldurshópum!

Listamarkaður ungs listafólks hefst kl. 19 og einnig myndlistarsýning Grósku í Gróskusal. Þá opnar ný sýning í Hönnunarsafni Íslands, Dieter Roth: Grafísk verk á Pallinum en tónlistarmennirnir Kusk og Óviti koma fram kl. 18:20 í anddyri safnsins.

Tacoson verður með tacovagninn sinn á staðnum til að seðja svanga gesti en einnig verður tilboð á Rökkvupizzu á Flatey. Lionsmenn munu selja tónleikagestum drykki.

Klukkan 19 hefst tónlistardagskrá á sviðinu í glerbyggingunni á Garðatorgi 4 en dagskránni lýkur með Stuðmönnum sem stíga á svið kl. 21.

Dagskráin á sviðinu:

  • Kl. 19:00 Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar
  • Kl. 19:30 Spagló & Eik
  • Kl. 20:00 Sigga Ózk
  • Kl. 20:30 Rökkvubandið
  • Kl. 21:00 Stuðmenn

Það er menningar- og safnanefnd Garðabæjar sem stendur að hátíðinni.

Viðburður á facebook síðu Garðabæjar.

Facebook síða listahátíðannar Rökkvu.