• 21.2.2026, 11:30 - 14:30, Bókasafn Garðabæjar

Scratch: Tölvuleikjagerð fyrir 7-10 ára

Skráning er nauðsynleg. Námskeiðið er haldið á Bókasafni Garðabæjar Garðatorgi 7.

Spennandi námskeið þar sem þátttakendur kynnast grunnforritun og helstu hugtökum tölvuleikjahönnunar með Scratch. Scratch er ókeypis og aðgengilegt forrit sem hægt er að nota á Íslensku.

Á þessu námskeiði munum þátttakendur búa til einfalda tölvuleiki, hanna persónur og umhverfi ásamt því að forrita. Námskeiðið er ætlað fyrir börn á aldrinum 7-10 ára og gert verður ráð fyrir stuttu matarhléi.

Takmarkað pláss er í boði þannig að nauðsynlegt er að skrá sitt barn með því að senda tölvupóst á netfangið: bokasafn@gardabaer.is

Yfirlit yfir viðburði Bókasafns Garðabæjar (á facebook)