• 1.12.2018, 14:30 - 15:30, Bókasafn Garðabæjar

Sigga og skessan kl. 14:30 í Bókasafni Garðabæjar

  • Sigga og skessan

Leiksýning verður fyrir 2-9 ára börn í Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 1. desember kl. 14:30. 

Leiksýning verður fyrir 2-9 ára börn í Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 1. desember kl. 14:30. Sigga og skessan í jólaskapi byggir á sögum Herdísar Egilsdóttur. Það eru að koma jól og allir að komast í sannkallað jólaskap. Skessan er heima í hellinum með Siggu að skreyta þegar þær frétta að veðrið er að breytast og snjónum kyngir niður. Allt er að verða ófært og það sem meira er að jólapósturinn kemst ekki áleiðis með jólakortin og jólagjafirnar til fólksins. Nú eru góð ráð dýr en með hjálp frá hvor annarri arka þær vinkonur af stað með jólaskapið eitt að vopni. Saman lenda þær svo í mörgum skondnum uppákomum og hjálpa til við að koma jólapóstinum á leiðarenda.
 
Höfundur: Herdís Egilsdóttir. Leikgerð og leikstjórn: Stoppleikhópurinn. Leikarar: Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir. Brúðugerð: Katrín Þorvaldsdóttir. Sýningartími: 30 mínútur. Allir velkomnir.

Viðburðurinn á Facebook.