• 1.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 9.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 11.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 16.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 18.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 23.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 25.11.2022, 14:00 - 18:00, Bókasafn Garðabæjar

Sköpunarskúffa Bókasafns Garðabæjar

Sköpunarskúffa Bókasafns Garðabæjar á miðvikudögum og föstudögum milli 14 og 18.  Þrívíddarprentari, saumavél og vínylskeri. 

Sköpunarskúffan er "Makerspace" Bókasafns Garðabæjar og er á 2. hæð safnsins á Garðatorgi 7.

Þrívíddarprentari

Hægt er að koma og prófa þrívíddarprentara miðvikudaga og föstudaga milli kl. 14:00 og 18:00 og sérstaklega auglýsta laugardaga.
Komdu og kannaðu möguleika þrívíddarprentunar. Hægt er að skoða ýmsa valkosti á Thingiverse.com.
Nauðsynlegt er að koma með USB lykil með verkefni eða koma og skoða á safninu. Við erum með möppu þar sem hægt er að skoða vinsælustu prentin.
Tímabókun er á bokasafn@gardabaer.is , í síma 5914550 eða í afgreiðslu safnsins.
1 meter af efni er á 50 krónur.

Saumavél

Hægt er að koma á bókasafnið og fá að nota saumavélina hvenær sem er á meðan safnið er opið.
Notendur þurfa að koma með eigin tvinna að heiman.

Vínylskeri

Tími og smiðjur í vínylskera munu vera auglýst bráðlega.

Sköpunarskúffan bókasafnsins er í stöðugri þróun. Fylgist með.

Sjá vef Bókasafns Garðabæjar.