• 10.6.2024 - 14.6.2024, 10:00 - 14:00, Bókasafn Garðabæjar

Skrif og teiknismiðja með Bergrúnu Írisi

Bergrún Íris, rit- og myndhöfundur, mun halda spennandi og frumlega skrif- og teiknismiðju á Bókasafni Garðabæjar vikuna 10.-14. júní og mun námskeiðið vera frá kl. 9-12 alla daganna. Smiðjan er ætluð börnum á aldrinum 9-12 ára.


Í smiðjunni kennir Bergrún börnunum grunntækni skapandi skrifa auk þess sem hún mun fara yfir mikilvægi myndlýsinga og verður unnið mikið með teikningar í smiðjunni. Þannig mun námskeiðið höfða jafnt til þeirra sem kjósa að segja sögur í orðum og/eða myndum.Starfsfólk bókasafnsins tekur vel á móti börnunum kl. 9 og bjóða uppá föndur, spil og aðra afþreyingu þangað til að Bergrún byrjar smiðjuna á slaginu 10.Þátttökugjald er 7.000.- á hvert barn og er takmarkaður þátttökufjöldi þannig að það er um að gera að tryggja sér pláss sem fyrst.Skráning: https://forms.office.com/e/pwnKjKX4e6?origin=lprLink