Smiðja fyrir krakka og fylgifiska í vetrarfríi
Þriðjudaginn 14. febrúar og fimmtudaginn 16. febrúar klukkan 13-15 fara fram hönnunarsmiðjur í Hönnunarsafni Íslands.
Þriðjudaginn 14. febrúar og fimmtudaginn 16. febrúar klukkan 13-15 fara fram hönnunarsmiðjur í Hönnunarsafni Íslands.
Heimurinn heima kallast smiðjurnar sem eru ætlaðar krökkum og fylgifiskum þeirra í vetrarfríi. Hönnuðirnir Auður Ösp Guðmundsdóttir og Kristín María Sigþórsdóttir stýra smiðjunum en þátttakendur setja sig í spor hönnuða og uppfinningamanna og búa til húsgögn fyrir ímyndað heimili. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin.