Sögur og söngur með Þórönnu Gunný
Fjölskyldustund á Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi. Fjörug tónlistarstund fyrir börn á aldrinum 2-7 ára.
Þóranna Gunný, söngkona og deildarstjóri á leikskóla skemmtir börnunum í þessari fjörugu stund. Þóranna syngur með börnunum helstu leikskólalögin og fær hópinn til að dansa með.Þóranna lætur svo ævintýrin lifna við með hressum og lifandi leiklestri. Skemmtileg og fjörug samverustund fyrir börn á leikskólaaldri.
Viðburður á facebook síðu Bókasafnsins.
English
Fairytales and songs with Þóranna Gunný. Fun for kids between the ages of 2-6.
