• 23.2.2026, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar

Spilafjör í vetrarfríi

  • spil teningar

Fjör í vetrarfríi á bókasafninu á Garðatorgi 7!

  • Spilafjör: Mánudaginn 23. febrúar, kl.10 - 12, verða skemmtileg spil á borðum fyrir grunnskólabörn og fjölskyldur þeirra.
  • Ratleikur: Orðaratleikur, sem reynir á þekkingu þátttakenda á bókasafninu og bókum, verður í boði allan daginn, kl.9-19. Dregið verður úr réttum lausnum 2. mars kl.12 og munu þrír heppnir hljóta glaðning.

Verið innilega velkomin á bókasafnið á Garðatorgi 7 í vetrarfríinu. Fullt af frábærum bókum, myndir til að lita, tafl og notalegt umhverfi! 

Yfirlit yfir viðburði Bókasafns Garðabæjar (á facebook)