• 25.4.2020

Stóri plokkdagurinn

  • Plokkdagur

Stóri plokkdagurinn verður haldin á Degi umhverfissins 25. apríl næstkomandi og eru allir hvattir til að fara út að plokka rusl.

Stóri plokkdagurinn verður haldin á Degi umhverfissins 25. apríl næstkomandi og eru allir hvattir til að fara út að plokka rusl. Plokkað verður á Reykjanesbrautinni við Vífilsstaði milli kl. 10-12. 


Plokktímabilið 2020 er formlega hafið. Samkomubann er alveg upplagt til að taka á því í plokkinu. Frábær útivera og hreyfing um leið og við finnum fyrir tilgangi, sjáum árangur, eflum núvitund og gerum umhverfinu og samfélaginu okkar gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á nein tæki nema ruslapoka.

Allstaðar um landið eru öflugustu plokkararnir okkar þó löngu byrjaðir og hægt er að fylgjast með afrekum þeirra í þágu umhverfissins og samfélagsins á facebook síðu Plokk Á Íslandi

Plokk á Íslandi hvetur alla landsmenn til að láta gott af sér leið og um leið fylgja fyrirmælum því plokkið er ráðlagður dagskammtur af hreyfingu um leið og auðveld er að fylgja reglum samkomubanns.
- Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
- Einstaklingsmiðað
- Hver á sínum hraða
- hver ræður sínum tíma
- Frábært fyrir umhverfið
- Fegrar nær samfélagið
- Öðrum góð fyrirmynd

Plokk á Íslandi er hópur einstaklinga sem bera virðingu fyrir umhverfinu og hafa það sem áhugamál að fara um illa hirt svæði og þrífa þar upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélaga, á girðingum og í skurðum á víðavangi og síðast en ekki síst við strendur landsins. Hópurinn á sérsvæði á Facebook og telja meðlimir hans rúmlega 6000 manns. Þar deila meðlimir sigrum og áskorunum í umhverfismálum og þar hvetja meðlimir hvor aðra til dáða og birta myndir af rusli sem tekið hefur verið úr náttúrunni og fært á viðeigandi stofnanir.