• 24.6.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 1.7.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 8.7.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 15.7.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 22.7.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 29.7.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 5.8.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar
  • 12.8.2022, 10:00 - 12:00, Bókasafn Garðabæjar

Sumarsmiðjur Bókasafns Garðabæjar

Fjölbreyttar smiðjur í boði fyrir börn á Bókasafni Garðabæjar alla föstudaga í sumar milli kl. 10 og 12.

Fyrsta smiðjan verður 24. júní og svo endum við sumarsmiðjurnar þann 12. ágúst. Smiðjurnar eru ókeypis og opnar öllum börnum.

Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi opnar kl. 9 og það er alltaf velkomið að koma snemma og hanga, lesa eða spjalla.
Lestrarhestur vikunnar í sumarlestrinum er síðan dreginn út kl. 12:00 alla föstudaga.
Bókasafn Garðabæjar á facebook.

Dagskrá sumarsins:

  • 24. júní: Pokar úr bolum.
    Komdu með gamlan bol af þér eða foreldrum og endurnýttu hann í sniðugan poka.
  • 1. júlí: Perlustund.
    Við eigum fullt af perlum og fyrirmyndum. Eigum notalega stund saman við perlun.
  • 8. júlí: Þitt eigið fríríki.
    Sköpum okkar eigið ríki, búum til skjaldamerki, fána og tilheyrandi fyrir ríkið okkar.
  • 15. júlí: Sjávardýr í glugga og á pappír.
    Skreytum gluggana í barnadeildinni með ýmsum sjávardýrum í takt við þema sumarlestursins. Einnig verður í boði að föndra fiska úr pappír.
  • 22. júlí: Spilaklúbbur.
    Spilum borðspil og hlustum á tónlist.
  • 29. júlí: Harry Potter dagurinn.
    Dagur galdrastráksins knáa verður haldinn hátíðlega eins og venjulega hjá okkur og við munum meðal annars föndra okkar eigin töfrasprota.
  • 5. ágúst: Origami bókamerki.
    Föndrum bókamerki í formi dýra og furðuvera.
  • 12. ágúst: Leikir og dans úti á torgi.
    Sumarstarfsmenn okkar bjóða í veislu úti á torgi. Gömlu leikirnir, snúsnú, krítar og teygjutvist, húllahringir og endalaust af skemmtilegri tónlist.