• 15.1.2020, 17:00, Bókasafn Garðabæjar

Tæknispjall kl. 17

Fáðu aðstoð með snjalltækið á bókasafninu. Kostar ekkert. Tæknispjall er einu sinni í mánuði á miðvikudögunum á milli klukkan 17 og 18. 

Fáðu aðstoð með snjalltækið á bókasafninu. Kostar ekkert. Tæknispjall er einu sinni í mánuði á miðvikudögunum á milli klukkan 17 og 18. Næsta tæknispjall er 15. janúar. Í tæknispjallinu veitir starfsfólk safnsins margvíslega tækniaðstoð fyrir hinn venjulega notanda. Hvernig á að tengjast netinu, finna vefsíður og eyðublöð, nota netið, tölvur, spjaldtölvur og síma. Best er að fólk hafi eigin tölvur eða snjallsíma meðferðis. Starfsmenn safnsins sem verða til aðstoðar vinna við tölvu og kunna ýmislegt en eru ekki lærðir sérfræðingar um tölvu- og tæknimál.